Iðnaðarhús frá Límtré Vírnet eru fjölhæfur og hagkvæmur byggingakostur. Límtré Vírnet hefur yfir 30 ára reynslu í framleiðslu á burðarvirki úr límtré sem er framleitt í verksmiðju fyrirtækisins á Flúðum, þeirri einu sinnar tegundar hér á landi. Einnig eru steinullarfylltar yleiningar í húsin framleiddar í nýrri verksmiðju fyrirtækisins á Flúðum.

Límtré Vírnet býður einnig upp á burðarvirki úr stálgrindum sem fyrirtækið flytur inn frá Llentab group í Svíþjóð.

Límtréshús

Notkun á límtré í byggingar býður upp á fjölbreytni í hönnun og útfærslum og sem burðarvirki er límtré hlýlegur og góður kostur og gefur húsinu notalegt yfirbragð. Einnig er uppsetning fljótleg og þægileg, sem skilar sér í lægri kostnaði.

Stálgrindarhús

Límtré Vírnet hefur flutt in stálgrindarhús í mörgum stærðum og gerðum um áratugaskeið með góðum árangri. Stálgrindarhús bjóða upp á mikla möguleika og eru auðveld og fljótleg í uppsetningu, sem skilar sér í lægri byggingarkostnaði.

Í myndasafni eru sýnd dæmi um byggingar sem Límtré Vírnet hefur byggt og undir vöruskrá hér að ofan er fjallað um burðarvirki, klæðningar, hurðir og aðrar vörur sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veita sölu- og tæknimenn hjá Límtré Vírneti.