Í samstarfi við timburvinnsluna Derix GmbH í Þýskalandi býður Límtré Vírnet upp á einingar úr krosslímdum viði. Einingarnar eru, eins og nafnið gefur til kynna, byggðar upp úr þrem, fimm, sjö eða fleiri (alltaf oddatala) lögum að viði sem lögð erum á víxl og límd saman. Þannig fæst létt en sterkt hráefni sem nota má við margvíslegar aðstæður. Veggir, þök, gólfplötur, lyftu- og stigahús, í íbúðar- eða iðnaðarhúsnæði, inni sem úti. Einingarnar eru fáanlegar í nokkrum viðartegundum, s.s. greni, furu, lerki og fleiri tegundum. Þær geta þannig leyst af hólmi önnur byggingarefni á einfaldan og árangursríkan hátt og bjóða upp á nýja möguleika bæði hvað varðar burðarþolshönnun og útlit.
Byggingadeild Límtrés Vírnets gerir tilboð í margvísleg verkefni, burðarþols- og útlitshönnun, og með þessum nýja valkosti fjölgar möguleikum sem í boði eru hvað varðar efnisval.
Nánari upplýsingar veita sölu- og tæknimenn hjá Límtré Vírneti.
Umhverfisvænn kostur
Viður er auðlind sem endurnýjast stöðugt. Timbrið sem Derix notar í sinni framleiðslu kemur úr sjálfbærum Evrópskum skógum. Orkunotkun við framleiðsluna er lítil og vegna stuttra flutningsleiða er kolefnisfótspor lágt og umhverfiáhrif lítil.