Bitagerðir
Í verksmiðju fyrirtækisins á Flúðum hefur límtré verið framleitt í rúmlega 30 ár. Límtré Vírnet framleiðir margar gerðir af límtrésbitum, jafnt stóra sem smáa, bogna og beina.
Framleiddir eru límtrésbitar með allt að 25 metra spennivídd, límtrésrammar með allt að 55 metra spennivídd og samsettar límtréssperrur fyrir miklar spennivíddir. Einnig framleiðir fyrirtækið súlur, boga, brýr og margt fleira úr límtré. Allar nauðsynlegar festingar og boltar fást einnig hjá fyrirtækinu.
Staðlaðar breiddir eru 45 mm, 55 mm, 65 mm, 90 mm, 115 mm, 140 mm, 160 mm, 185 mm og 210 mm.
