Lindab stallað stál

Límtré Vírnet flytur inn eftir sérpöntun stallað þakstál frá Lindab í klassísku þaksteinsmunstri sem kallast Norrviken. Með því að nota Lindab Norrviken þá fæst falleg og skemmtileg lausn á þakklæðningu á sérhverja byggingu, sérstaklega þær sem er ætlað að skera sig úr í útliti. Styrkur og ending Lindab þakstáls er mikill en það er heitgalvaniserað og lakkað með veðurþolnu polyesterlakki og er fáanlegt í mörgum litum.

Stallað stál frá Lindab

Stallað stál er stílhrein og falleg lausn sem er auðvelt að skara saman.  Hægt er að sérpanta hvaða lengd sem er upp að 6 metrum en lágmarkspöntun er 25 lengdarmetrar.

Lindab er með yfir 30 ára reynslu í framleiðslu og sölu þakstáls á Norðurlöndum.

Skoða bækling um stallað þakstál

LPA Prófíll

Lindab Torekov LPA er prófíll með aðeins hærra sniði sem gefur þakinu sterkt og klassískt yfirbragð. Hærra sniðið þýðir jafnframt að þekjubreiddin er minni en hjá LPE-gerðinni.

Torekov fæst í fjölbreyttum litum og áferðum og hentar vel þar sem óskað er eftir áberandi og hefðbundnu útliti. Pönnulengd: 400 mm.

LPE Prófíll

Lindab Norrviken LPE er prófíll með lægra sniði sem gefur þakinu fágað og látlaust yfirbragð. Lægra sniðið skilar jafnframt betri þekjubreidd og getur því verið hagkvæmur kostur við þakklæðningu.

Norrviken sameinar fallegt útlit, endingargóð efni og hagnýta hönnun. Pönnulengd: 350 mm.

Myndir