Vélar og verkfæri
Límtré vírnet flytur inn fjölda verkfæra og véla sem henta festingum, íhlutum og klæðningum. Á boðstólnum eru verkfærin sjálf, sem og viðhalds og viðgerðarþjónusta.

Járnabindivélar
Límtré Vírnet flytur inn sjálfvirkar járnabindivélar, bæði frá Max og MVM. Við rekum einnig varahluta- og viðgerðaþjónustu við bindivélarnar, þar er boðið upp á hreinsun og stillingar.

MAX RB398
Hleðslutæki og 2 stk Li-ion rafhlöður fylgja með í tösku. Hleðsla á rafhlöðu endist í bindingu á 20 rúllum af vír (TW898) eða 2.500 hnúta.
MAX RB441T TWINTIER
Hleðslutæki og 2 stk Li-ion rafhlöður fylgja með í tösku. Hleðsla á rafhlöðu endist að í binda 4.000 hnúta. Vélin getur bundið 2 x 20mm járn og bindur hnútinn á um 0,5 sek.


Handverkfæri
Límtré Vírnet býður upp á ýmiskonar handverkfæri til nota við járnabindingar og aðra vinnslu á kambstáli. Einnig býður fyrirtækið upp á ýmsar gerðir vinnuvettlinga.
Eftirfarandi er hluti þeirra verkfæra sem fást hjá Límtré Vírneti, sum hver í nokkrum stærðum:
- Beygjuklossar
- Beygjulyklar
- Binditrillur
- Bítarar
- Naglbítar
- Handklippur
- Plankaklippur
- Uppbeygjujárn
- Málbönd
Járnaklippur
Límtré Vírnet býður upp á rafknúnar járnaklippur í mörgum stærðum, allt frá litlum einfasa handklippum upp öflugar þriggja fasa standklippur. Einnig eru fáanlegar þýskar loftklippur sem henta vel til klippingar á mottum.
Vöruúrval

H45
Breidd: 65 cm
Lengd: 136 cm
Hæð: 80 cm
Afl mótors: 5,5 KW
Spenna: 380 Volt
Þyngd: 362 Kg
Þvermál járns: 40 mm

P24 – SÉRPÖNTUN
Breidd: 39cm
Lengd: 71cm
Hæð: 62cm
Afl mótors: 3 Kw
Spenna: 380 Volt
Þyngd: 115 Kg
Þvermál járns: 20mm

H26
Breidd: 55cm
Lengd: 105cm
Hæð: 60cm
Afl mótors: 2,2 KW
Spenna: 380 Volt
Þyngd: 160 kg
Þvermál járns: 25mm