Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyrirtæki og byggir starfsemin á margreyndum framleiðsluferlum. Starfsfólk okkar er einnig með áratuga starfsreynslu við framleiðslu og sölu á gæðavörum fyrir íslenskan byggingariðnað.

Starfsemi okkar er rekin  á þremur stöðum á landinu.  Höfuðstöðvarnar eru á Lynghálsi 2 í Reykjavík, þar  eru skrifstofur forstjóra, fjármálastjóra og innkaupadeildar. Þar er einnig byggingadeild þar sem starfa verk- og tæknifræðingar ásamt hönnuðum, þar eru hannaðar byggingar og hús sem fyrirtækið framleiðir, bæði hvað varðar burðarþol og útlit.  Á Lynghálsi 2 er einnig staðsett söludeild sem veitir faglega ráðgjöf og selur lausnir fyrir byggjendur límtrés- og stálgrindahúsa, einnig ýmsa íhluti til bygginga svo sem göngu- og iðnaðarhurðir, þakrennur o.fl.  Ennfremur er þar lager og afgreiðsla.

Í Borgarnesi framleiðir fyrirtækið valsað stál og ál til klæðninga utanhúss og innanhúss, ásamt framleiðslu á milliveggjastoðum úr stáli.  Í Borgarnesi eru einnig reknar blikksmiðja og járnsmiðja. Þar er einnig til húsa framleiðsla á ýmiskonar lykkjum og beygðum teinum úr kambstáli fyrir steinsteypt burðarvirki.  Aðalsöludeild Límtrés Vírnets er einnig í Borgarnesi.

Á Flúðum er starfrækt eina íslenska límtrésverksmiðjan, þekkt fyrir gæði, áreiðanleika og góða þjónustu. Á Flúðum er einnig framleiddar steinullareiningar sem eru samlokueiningar með steinull sem einangrun.

Starfsólk Límtrés Vírnets kappkostar að veita viðskiptavinum sínum fljóta, góða og örugga þjónustu.  Hér á heimasíðunni er gott yfirlit yfir vöruval okkar og þjónustu. Hafðu samband og við hjálpum þér að byggja, breyta eða bæta húsnæði þitt.

bogavals-400x400

Viðskiptaskilmálar

FYRIRTÆKI

EINSTAKLINGAR