Einbýlishús

Límtré Vírnet býður upp á stöðluð einbýlishús á hagkvæmu verði, úr íslenskri framleiðslu. Húsin eru byggð úr límtrésburðarvirki og klædd með steinullareiningum sem bæði einangra og klæða bygginguna á sama tíma. Útveggir eru klæddir með fallegri álklæðningu sem hægt er að fá í fjölbreyttum litum. Með fylgja hurðir, gluggar og festingar sem þarf til að reisa bygginguna fljótt og örugglega.

Heimalundur

Heimalundur er 155 fm staðlað einbýlishús hannað með heimilið í huga. Þar eru þrjú svefnherbergi, björt stofa og eldhús, bílskúr, þvottahús og geymsla – rými sem skapa góðan grunn að daglegu lífi fjölskyldunnar.

Húsið er reist úr límtré og steinullareiningum og klætt með áli. Þessi byggingaraðferð gerir framkvæmdina fljótlega, einfaldari og vel skipulagða.

Efnisvalið er jafnframt með framtíðina í huga. Límtréið er svansvottað og bæði límtré og steinullareiningar eru umhverfisvæn byggingarefni með lágt umhverfisspor.

 

155m²

 

Breidd: 9,62m

 

Lengd: 16,19m

 

Vegghæð: 3,18m

 

Mænishæð: 4,92m

 

Þakhalli: 20°

 

1 x Bílskúrshurð 2,7 x 2,47m

 

3 x Gönguhurðir

 

7 x Gluggar

 

U gildi í þak:0.2

 

U gildi í vegg: 0.3

 

Upplýsingar og teikningar

Teikningar
Gluggar og hurðir
Bílskúrshurðhurð

Verð 24.500.000 kr. m. vsk*

Verðin miðast við byggingavísitölu í Febrúar 2026 – 128.1stig

Hverjir eru kostir staðlaða húsa?


Hagkvæmt byggingarefni

Auðveld uppsetning 

 

Aðaluppdrættir og teikningar af sökkli og burðarvirki fylgja

 

Festingar og efni til uppsetningar innifalið

 

Umhverfisvænt byggingarefni

 

Fallegt heimili úr traustu efni