Stoðir og leiðarar
Límtré Vírnet framleiðir stoðir og leiðara fyrir gipsveggi eða aðra létta veggi. Stoðirnar og leiðararnir eru valsaðir í stöðluðum lengdum en einnig er boðið upp á að valsa aðrar lengdir eftir máli ef óskað er. Kosturinn við að fá stoðirnar í sérsniðnum lengdum er að nýting efnis verður mun betri og vinnutími við uppsetningu styttist. Leiðararnir eru fáanlegir með álímdum filtborða til að bæta hljóðeinangrun í veggjum. Stoðirnar og leiðararnir eru unnir úr galvaniseruðu stáli, 0,5 mm. þykku. Einnig er hægt að fá stoðir og leiðara úr 1,20 mm galvaniseruðu stáli sem styrktarstoðir

Breiddir og lengdir
| Milliveggjastoðir | |||
| Breidd/lengd | 2600mm | 3000mm | 3600mm |
| 45 mm | x | x | x |
| 70 mm | x | x | x |
| 95 mm | x | x | x |
| 120 mm | x | x | x |
| Styrktarstoðir (1,2 mm veggþykkt) | |||
| 95 mm | x | x | x |
| 120 mm | x | x | x |
| 150 mm | x | x | x |
| Leiðarar | |||
| 45 mm | x | ||
| 70 mm | x | ||
| 95 mm | x | ||
| 120 mm | x | ||
| Styrktarleiðarar (1,2 mm veggþykkt) | |||
| 95 mm | x | ||
| 120 mm | x | ||
| 150 mm | x | ||