Þakklæðningar

Límtré vírnet framleiðir báruklæðningar úr áli sem henta vel til þakklæðninga. Í verksmiðju okkar í Borgarnesi völsum við álið og skerum niður í lengdir eftir þörfum og óskum. Álið er PVDF húðað og hentar sérstaklega vel í selturíku umhverfi. Algengast er að notast sé við 0,7mm þykkt ál til þakklæðninga en einnig er hægt að velja um 1mm þykkt ál. Hægt er að velja um allt að 15 mismunandi liti. Báru formið er bæði vel þekkt og þrautreynt hér í þakklæðningar.

Brúnt hús með ál þakklæðningu

Bára

Báruál eða Bára 18 er algengt form í þaklæðningu enda hefur það góða reynslu við íslenskar aðstæður.  Báruformið kallast 18/76, sem þýðir að hæðin á bárunni er 18mm og breidd hverrar báru er 76 mm. Báruál má fá í í fjölmörgum litum og hentar gríðarlega vel inn í íslenskt umhverfi.

Þegar ál er fest á þak er mælt með að nota 12-14 festingar (þaksaum eða skrúfur) á hvern fermetra. Einnig þarf að taka með í reikninginn að ál þenur sig meira en t.d. stál og því þurfa göt fyrir skrúfur eða nagla að vera rúmlega sverleiki festingarinnar. Fer það allt eftir lengd báruplötunnar.

 

ATH: Ekki er ráðlagt að hafa báruálsplötur lengri en 8 metra vegna þennslu.

Trapisa

 

Trapisuvalsaðar klæðningar má nota sem klæðningu á bæði á þök og hefur verið vinsæl til notkunar á stærri byggingar eins og til að mynda iðnaðarhúsnæði, útihús og skemmur. Hún kemur í tveimur stærðum, 45 og 20 og tiltekur þá hæðina á völsuninni, 20mm eða 45mm.
Platan er 1,07 m breið en klæðir 1,00 m þegar hún hefur verið sköruð.

Þegar ál er fest á þak er mælt með að nota 12-14 festingar (þaksaum eða skrúfur) á hvern fermetra. Einnig þarf að taka með í reikninginn að ál þenur sig meira en t.d. stál og því þurfa göt fyrir skrúfur eða nagla að vera rúmlega sverleiki festingarinnar. Fer það allt eftir lengd báruplötunnar.

 

ATH: Ekki er ráðlagt að hafa báruálsplötur lengri en 8 metra vegna þennslu.

Formgerðir Trapisu má sjá hér 

Bogavölsun

Bogavölsun á báruáli hefur síðustu árin rutt sér til rúms sem nýr valkostur og hafa hönnuðir og arkitektar nýtt sér hana í síauknum mæli. Áður en bogavalsað er þurfa eftirfarandi upplýsingar að liggja fyrir:

  • Þykkt efnis
  • Plötulengd (hámarks plötulengd er 6 metrar)
  • Radíus völsunar