Byggingadeild
Byggingadeild Límtrés Vírnets er til húsa að Lynghálsi 2, Reykjavík. Þar eru tæknimenn tilbúnir að aðstoða viðskiptavini sem eru að velta fyrir sér húsbyggingu og finna með þeim byggingarform og efni sem hentar þeim og þeirra óskum.
Einnig eru tæknimenn reiðubúnir að aðstoða viðskiptavini við að finna lausnir sem henta þeim varðandi burðarvirki, klæðningar, deili og annað sem þá gæti vanhagað um.
Ráðgjöf
Byggingadeild veitir m.a. ráðgjöf um eftirfarandi:
- Tillögur að burðarkerfi fyrir viðkomandi húsbyggingu.
- Tillögur að uppbyggingu þaks.
- Tillögur að uppbyggingu útveggja.
- Ráðgjöf fyrir mismunandi uppbygginu á kæli- og frystiklefum.
Tilboðsgerð
Hægt er að óska eftir ýmsum útfærslum af tilboðum í húsnæði:
- Tilboð í efnispakka samkvæmt magnskrá sem viðskiptavinurinn afhendir.
- Tilboð í efnispakka fyrir límtréshús með yleiningum samkvæmt teikningum sem viðskiptavinurinn afhendir.
- Tilboð í efnispakka fyrir límtréshús með yleiningum samkvæmt aðaluppdráttum viðskiptavinarins og samkvæmt tillöguteikningum fyrir límtré og yleiningar frá Límtré Vírnet ehf.
Hönnun
Byggingadeild getur séð um eftirfarandi hönnun og teikningar:
- Burðarþolsteikningar og framleiðsluteikningar fyrir límtrésbita.
- Burðarþolsteikningar og framleiðsluteikningar fyrir límtréshús.
- Teikningar fyrir uppsetningu og frágang á yleiningum.
- Teikningar fyrir kæli- og frystiklefa.
Kostnaðaráætlun
Þegar ekki liggja fyrir teikningar getur byggingadeild gefið kostnaðaráætlun í viðkomandi byggingu samkvæmt lýsingu frá viðskiptavini og gefið síðan tilboð eftir að nánari forsendur og teikningar liggja fyrir.