Nýjar vélar og verkfæri fyrir kambstál

Vöruúrvalið okkar er í stöðugri þróun og nýlega tókum við inn fjölda sérhæfðra véla og verkfæra til að mæta fjölbreyttum þörfum í járnabindingum og almennri kambstálsvinnslu. Þessar vélar frá Tjep og öðrum vörumerkjum standast ítrustu kröfur, munu að einfalda vinnuna á vettvangi og margfalda afkastagetu.

TJEP ULTRA GRIP bindivélar

TJEP ULTRA GRIP bindivélar eru rafhlöðuknúnar vélar sem einfalda og hraða vinnu við bindingu kambstáls. Vélarnar koma með snjöllu gripkerfi sem tryggir örugga og jafna spennu í hverri bindingu. Þær eru sérstaklega gagnlegar á byggingarsvæði þar sem framkvæma þarf hundruði eða þúsundir bindinga daglega.

TJEP ULTRA GRIP 40

  • Bindigeta: 12–40 mm kambstál
  • Hentar fyrir: Kambstál, forsteyptar einingar, undirstöður og gólfhitakerfi
  • Rafhlöðuending: Um 4500 bindingar á hleðslu
  • Bindingarhraði: Um 0,7 sekúndur á hverja bindingu

TJEP ULTRA GRIP 58

  • Bindigeta: 30–58 mm kambstál
  • Hentar fyrir: Kambstál í stærri mannvirkjum og í verkefnum þar sem þykkari stangir eru notaðar
  • Rafhlöðuending: Um 3200 bindingar á hleðslu
  • Bindingarhraði: Um 0,8 sekúndur á hverja bindingu

TJEP Hydra klippivélar

Þessar vélar notar vökvakerfi til að skera stálið af meiri kraft en hefðbundin klippitæki og gera það án neista eða hávaða. Skurðurinn verður nákvæmur og umstang í kringum vinnuna verður minna.

TJEP HC-18B Hydra

  • Skurðargeta: 5–18 mm kambstál
  • Hentar fyrir: Kambstál
  • Klippihraði: Um 3–5 sekúndur
  • Skurður per rafhlöðu 159 f. 16mm, 321 f. 12mm

TJEP HCS-20B Hydra

  • Skurðargeta: 5–20 mm kambstál
  • Hentar fyrir: Kambstál
  • Klippihraði: Um 3–5 sekúndur
  • Skurður per rafhlöðu:109 f. 20mm, 210 f. 16mm, 392 f. 12mm

TJEP RC klippivélar

Klippivélar í RC-línunni frá TJEP eru sérstaklega ætlaðar fyrir krefjandi aðstæður þar sem þarf að klippa mikið magn af kambstáli með hraða og öryggi. Vélin notar þrýsting til að skera, án þess að valda miklum titringi eða hávaða. Klippingin er hraðvirk og hentar vel í forvinnslu á verkstæðum eða á byggingarstað.

TJEP RC20A

  • Skurðargeta: 10–20 mm
  • Hentar fyrir: Kambstál og rör
  • Klippihraði: Um 2–3 sekúndur

TJEP RC30A

  • Skurðargeta: 10–30 mm
  • Hentar fyrir: Kambstál og röri
  • Klippihraði: Um 2–3 sekúndur

OFMER P34 EVO beygjuvél

OFMER P34 EVO er fjölhæfur og traustur kostur í beygjuvinnslu á kambstáli. Vélin hefur fjölhæfa beygjuskífu sem býður upp á að ná einföldum og tvöföldum beygjum án vandræða.

  • Vinnslugeta: Beygir kambstál allt að 30 mm í þvermál
  • Snúningshraði: 11 snúningar á mínútu
  • Afl: 3 hestöfl (2,2 kW)
  • Þyngd: 285 kg

Trillur

Nýlega tókum við inn trillur fyrir bindivír sem eru bæði þægilegri og áreiðanlegri en áður. Nýju trillurnar eru úr fáanlegar úr ryðfríu stáli eða plasti og Krómi og eru meðfærilegri en aðrar trillur sem við höfum haft áður. Þær hristast ekki við notkun og henta fullkomlega fyrir hvers konar verkefni, bæði stór og smá.

FréttirUncategorized

Written by

kristjan

Published on

1. apríl, 2025