Verktakamót Límtré Vírnets 2026

Golfmót Límtré Vírnets var haldið á dögunum við frábærar aðstæður. Veðrið lék við þátttakendur, stemningin var góð og það var virkilega gaman að njóta dagsins saman á golfvellinum.

Fjöldi kylfinga tók þátt í mótinu og þar á meðal voru fimm meðlimir af póstlistanum okkar. Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir skemmtilegan dag og óskum vinningshöfum mótsins innilega til hamingju.

Dagurinn var að sjálfsögðu festur á filmu og hér má sjá brot af stemningunni frá mótinu.

Takk fyrir frábæran dag og góða stemningu. Við hlökkum til að hittast aftur á næsta golfmóti Límtré Vírnets!

FréttirUncategorized

Written by

kristjan

Published on