Blikksmiðja Límtrés Vírnets byggir á traustum grunni en fyrirrennari hennar er Blikksmiðja Magnúsar Thorvaldssonar sem stofnuð var 1967. Verkefnin sem leyst eru í blikksmiðjunni hafa tekið nokkrum breytingum í áranna rás en áherslan er ávallt á að skila vel unnu verki, sinna viðskiptavinum vel og leysa verkefnin á sem hagstæðastan hátt.

Meðal helstu verkefna og smíðisgripa eru:
 Utanhússklæðningar  Dyrastál
 Lofttúður  Veðurhlífar
 Kassar  Þakrennur og niðurföll
Frágangslistar Ýmis sérsmíði

Verkefni blikksmiða eru margvísleg og eru jafnt unnin inni í smiðju sem á verkstað hjá viðskiptavinum. Að auki fer fram öll almenn efnissala.

Nánari upplýsingar veita sölu- og tæknimenn hjá Límtré Vírneti.