Sjáðu hvernig húsið þitt gæti litið út með klæðningunni okkar

Límtré Vírnet hefur markað ný spor í klæðningum á Íslandi með lausn sem gerir þér kleift að sjá hvernig byggingin þín kemur til með að líta út með okkar klæðningu. Lausnin er einföld í notkun en býður upp á fjölbreytta möguleika.
Sjón er sögu ríkari og það er langbest að prófa sig áfram, í staðinn fyrir að lesa um möguleikana sem liggja í þessari lausn.
Ef þú vilt læra bestu leiðirnar til að nota tólið þá er þær að finna hér fyrir neðan.
Hvernig er best að hlaða upp myndum?
Hægt er að hlaða upp myndum af hvaða húsi sem er og Roomvo skannar húsið, finnur veggi og einkennir þá til notkunar. En það er best að hafa nokkra hluti í huga:
- Ekki vera of langt í burtu. Það er engin regla og hús eru mismunandi í laginu. en það er best að vera ekki lengra en 10 metra frá húsinu.
- Veldu sjónarhorn þar sem fæst skyggir á húsið. Rommvo virkar á veggi, ekki tré, runna eða bíla.
- Hafðu jafna lýsingu. Myndir af kvöldi til eru ekki ákjósanlegar, nema um sé að ræða íslenskt sumarkvöld.
- Forðastu tröppur, hálfa veggi og annað sem væri hægt að rugla saman við „veggi“.
Ef í harðbakkann slær má alltaf taka mynd af Google maps og ja.is. Við göngum fæst með mynd af húsinu okkar í símanum.
Get ég valið hvaða klæðning fer á hvaða vegg?
Já! Þegar þú hefur hlaðið upp mynd sérðu valmöguleika á myndinni “Veggir”. Smelltu á Veggir og þá sýnir Roomvo þér hvað það hefur einkennt sem veggi og sett í hópa saman. Það er mikilvægt að hafa í huga að Roomvo velur þessa eftir duttlungum gervigreindarinnar og stundum eru veggir eða svæði valin saman sem í raun eiga lítið sameiginlegt. Þetta getur lagast með því að hlaða myndinni upp aftur eða með því að nota aðra mynd.

Þegar þú hefur opnað þennan möguleika er virknin örlítið öfugsnúin miðað við fyrstu væntingar. T.d. ef þú vilt skipta um lit á einum vegg en halda hinum óbreyttum þarft þú að afvelja alla veggina sem eiga að vera óbreyttir og síðan velja nýjan möguleika á veggina sem þú vilt breyta.
Með þessu verklagi getur þú sett eina klæðningu á einn vegg, aðra klæðningu á annan og jafnvel þriðju og fjórðu á fleiri veggi.

Get ég borið saman mismunandi samsetningar?
Það er mjög einfalt og skemmtilegt. Þú smellir á Bera saman í efri stiku, og þá opnast valmöguleiki á að velja klæðningar á hægri og vinstri hlið. Val á klæðningum virkar nákvæmlega eins og venjulega en núna ertu með stiku sem þú getur dregið fram og til baka og þannig séð enn fleiri möguleika en áður.
Hvernig finn ég klæðninguna sem mig langar að skoða?
Þegar þessi grein er skrifuð eru yfir 120 mismunandi klæðningarmöguleikar í Roomvo og þeim mun halda áfram að fjölga eftir því sem vöruúrvalið þróast. Allir þessir valkostir birtast á sama stað, sem getur gert leitina að réttu lausninni krefjandi.
Mikilvægasta tólið til að einfalda leitina eru síurnar sem finna má vinstra megin. Með því að opna síurnar er hægt að þrengja valið eftir því sem þú ert að leita að formi, lit og hráefni.
Mælt er með að byrja á því að velja hráefni og form, sem skilar afmörkuðum og viðráðanlegum lista af litum. Einnig er hægt að velja lit fyrst og sjá þá alla valkosti sem í boði eru fyrir þann lit.

Get ég deilt myndum af húsinu?
Já, og miklu meira en það. Þú einfaldlega ýtir á Deila og færð þá ýmsa valmöguleika. Einfaldast er að fá hreinlega hlekk sem þú getur deilt hvar sem er, Hver sá sem smellir á hlekkinn fer þá inn í Roomvo tólið með þínum stillingum og mynd.

Svo er hægt að senda með email en þá kemur hlekkur inn á Roomvo ásamt pdf-i með mynd og upplýsingum um klæðningarnar sem um ræðir. Auðveldara verður það ekki.
Mun húsið mitt líta nákvæmlega eins út?
Nei. Roomvo er öflugt tól sem getur gefið þér góða hugmynd um hvernig klæðningin mun líta út á húsinu þínu en myndirnar eru tölvugerðar og flatar. Litur á skjá er heldur aldrei nákvæmlega eins og í raunveruleikanum og Roomvo býr ekki til áfellur í kringum glugga eða karma. Það er því ómögulegt að sjá upp á hár hvernig byggingin mun líta út. En Roomvo er hins vegar besta tólIð sem okkur býðst til að fá góða hugmynd um það.
Hvað ef ég hef meiri spurningar?
Sendu okkur línu, þú getur sent okkur pdf eða hlekki jafnvel og við getum gefið þér tilboð eða aðstoðað við næstu skref. Sendu okkur póst á Sala@limtrevirnet.is og við verðum í bandi.