Nýr forstöðumaður Byggingarsviðs

Límtré-Vírnet ehf. hefur ráðið Gísla Símonarson sem forstöðumann byggingarsviðs hjá fyrirtækinu. Hann tekur við af Sigurði Guðjónssyni sem hefur sinnt stöðunni undanfarin ár en Sigurður lét af störfum 1. maí eftir 39 ára starf hjá fyrirtækinu. Sigurður hefur unnið gott starf í áratugi og hefur sett mark sitt á íslenskan byggingariðnað og íslenskar byggingar.

Hann leggst nú í helgan stein eftir áratuga dygga og góða þjónustu.

Gísli er tæknifræðingur frá Háskóla Reykjavíkur og hefur unnið hjá Límtré Vírnet síðan 2013. Hóf hann störf sem hönnuður á byggingardeildinni þar sem hann sinnti bæði límtrés og einingahönnun fyrstu árin. 2017 þróaðist starf hans út í að vinna meira við sölu á lausnum fyrirtækisins er snúa að límtré og steinullareiningum. Hvort sem það snýr að minni pöntunum eða heilu verkefnin sem hönnuð og framleidd eru af Límtré Vírnet. Hann hefur verið fráfarandi forstöðumanni innan handar við sölu, hönnun og framleiðslu í árabil.

Um þessar breytingar segir Gísli sjálfur:

Ég tek við góðu búi frá Sigurði, hann hefur unnið frábært starf síðustu áratugi og markað okkur sérstöðu í íslenska byggingariðnaðinum með innlendri gæðaframleiðslu. Hlutur límtrés sem byggingarefnis fer sífellt vaxandi enda umhverfisvænn og hagkvæmur kostur fyrir fjölbreyttar tegundir bygginga. Mínar áherslur verða svipaðar og áður en það eru spennandi tímar fram undan hjá Límtré Vírnet þar sem við vinnum að því að stórauka framleiðslugetu okkar á límtré á Flúðum með endurnýjun tækjabúnaðar sem þýðir að við munum geta tekið að okkur fleiri og stærri verkefni í framtíðinni. Ég hlakka til að taka þátt í þessu að efla og stækka byggingardeildina okkar ásamt því að stuðla að byggingu umhverfisvænna, hagkvæmra og endingargóðra húsa um allt land.

Gísli Símonarson, nýr forstöðumaður Byggingarsviðs.
FréttirUncategorized

Written by

kristjan

Published on

6. maí, 2025