Saga Límtré Vírnets

Saga Límtré Vírnets er saga af stórhuga athafnamönnum sem vildu glæða heimasveitir sínar lífi og iðnaði. Hér getur að líta sögu fyrirtækisins.

Vírnet stofnað árið 1956

Veitingaskáli Vigfúsar Guðmundssonar í Brákarey var fyrsta aðsetur Vírnets.

Það var árið 1955 sem fyrst kom fram hugmynd um að stofna í Borgarnesi fyrirtæki sem framleiddi vírnet, gaddavír, lykkjur og fleira. Fyrstur til að láta sér detta slíkt í hug var maður að nafni Loftur Einarsson, athafnamaður með meiru. Það var síðan Halldór E. Sigurðsson  þáverandi og fyrsti sveitarstjóri í Borgarnesi og síðar alþingismaður og ráðherra sem tók hugmyndina til alvarlegrar skoðunar. Þeir Loftur leiddu svo verkefnið til framkvæmdar ásamt Hannesi Guðmundssyni lögfræðingi og starfsmanni hjá utanríkisráðuneytinu og tóku fyrstir sæti í stjórn, Hannes gegndi einnig framkvæmdastjórastöðu um tíma frá árinu 1962. Fyrirtækið fór ágætlega af stað og stofnun þess var mikilvægt skref í að auka fjölbreytni og orku í atvinnulífi Borgarness.

Vírnet hf var formlega stofnað á fundi sunnudaginn 5. febrúar árið 1956. Meðal hluthafa var Kaupfélag Borgfirðinga sem þá hafði eignast veitingaskála Vigfúsar Guðmundssonar í Brákarey og varð hann fyrsta aðsetur fyrirtækisins

Íslenskir naglar

Fljótlega kom í ljós að húsnæðið var alltof lítið og óhentugt fyrir þær vélar sem til þurfti til að framleiða girðingarefni. Það varð því að ráði að fara yfir í framleiðslu á nöglum og til þess gerð vél var keypt frá Þýskalandi.

Kostnaður lék líka hlutverk í þessari ákvörðun eins og kom fram í viðtali við Pál Guðbjartsson þáverandi framkvæmdastjóra Vírnets árið 1983: „…Við ætluðum upphaflega að framleiða vírnet í girðingar, en vélar til framleiðslunnar voru svo stórkostlega dýrar að ekkert varð úr þeim áformum. Þess í stað hófum við framleiðslu á nöglum…“ 

Þýska naglavélin kom til landsins á stofnárinu og þrír menn voru ráðnir til starfa auk Lofts sem var verksmiðjustjóri. Voru það Jónas Gunnlaugsson, Þorsteinn Auðunsson og Ragnar Ásmundsson. Á vordögum þótti ástæða til að ráða fjórða starfsmanninn til framleiðslunnar, en það var Axel Hallgrímsson. Hann var Vírneti nýtur og trúr starfsmaður allt þar til hann hætti störfum á níræðisafmæli sínu í september 1985.

Á þessum fyrstu mánuðum Vírnets árið 1956 kom þýskur sérfræðingur til að koma framleiðslunni af stað og var byrjað á að smíða svarta nagla í tveimur stærðum, tveggja og fjögurra tommu langa.

Öllu var pakkað í sömu pakkningastærðina, fimm kg öskjur og átta öskjur saman í kassa. Full þörf reyndist vera fyrir þessa nýju íslensku framleiðsluvöru og strax ári síðar var farið að undirbúa stækkun verksmiðjunnar.

Svo fór að um langt skeið var Vírnet eini framleiðandi nagla á Íslandi.

Vírdráttarvél keypt

Vírnet hf hélt áfram að dafna og nokkrum árum eftir stofnun þess var farið að huga að byggingu nýs verksmiðjuhúss í Borgarnesi, enda ýmsar fyrirætlanir í farvatninu. Var byggingunni valinn staður allnokkuð ofan við megin byggðina, að Borgarbraut 74 og var byrjað að byggja árið 1963.

Fyrsta vélin sem fór í nýja húsnæðið var vírdráttarvél sem keypt hafði verið með það að augnamiði að lækka hráefniskostnað. Þetta var tímamótaákvörðun, því þar með gat Vírnet sjálft dregið vírinn til saumframleiðslunnar og framleitt mótavír og bindivír, úr sama hráefni og notað var í nagla. Þetta þýddi einnig að með því að draga vírinn í eigin vél var alltaf hægt að hafa nýdreginn vír til að vinna sauminn úr, en fram að þessu þurfti oftast að geyma talsvert af dregnum vír og það gat orsakað ryðmyndun að geyma hann lengi.

Vírdráttarvélin var af gerðinni Herborn og hún átti eftir að þjóna fyrirtækinu dyggilega í rúmlega 40 ár. Í framhaldinu var byggður afglóðunarofn sem notaður var til að ná herslunni úr vír, en hann þurfti að mýkja til að hann hentaði í mótavírsframleiðsluna. Vírinn var hitaður í ofninum upp í 600° í sex klukkustundir. Ofninn var íslensk framleiðsla og dugði einnig í áratugi með tilheyrandi endurbótum.                  

Guðmundur Pétursson vinnur hér við að „ydda“ vírinn. Vírnum var stungið á  milli kefla sem gengu á hjámiðju og mjókkuðu endann svo hægt væri að stinga honum í gegnum vírdráttaraugun.

Páll tekur við framkvæmdastjórn

Páll Guðbjartsson var forstjóri Vírnets í tæp 30 ár.
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar.
Páll Guðbjartsson var forstjóri Vírnets í tæp 30 ár.
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar.

Loftur hætti störfum fyrir Vírnet árið 1962 og var Bjarni Jóhannsson ráðinn í hans stað. Páll Guðbjartsson tók við framkvæmdastjórn fyrirtækisins árið 1972, en þá voru starfsmennirnir 14 talsins. Hann gegndi starfinu allt þar til hann fór á eftirlaun tæpum þremur áratugum síðar. Nefna má að við starfslok hans voru þrír upphaflegra samstarfsmanna hans enn við störf fyrir Vírnet; Páll Lind Egilsson og bræðurnir Agnar og Kristján Ólafssynir.

Páll Guðbjartsson var fæddur árið 1931 í Kollsvík við Patreksfjörð, gekk í Samvinnuskólann og stundaði framhaldsnám í Svíþjóð. Á starfstíma hans fetaði fyrirtækið nýjar leiðir með framleiðslu þakjárns og valsaðs klæðningarstáls. Varð það m.a. til þess að fest voru kaup á vélakosti Blikksmiðju Magnúsar Thorvaldssonar í Borgarnesi og eigin blikksmiðja Vírnets var sett á fót.

Þórey Jónasdóttir skrifstofustjóri Vírnets skrifaði svo um Pál við andlát hans: „…Hann fylgdist vel með starfseminni út um allt hús og hafði gjarnan okkur hin með í ráðum. Hann kom við í öllum deildum og ræddi málin við þá sem þar unnu. Honum tókst að láta okkur, hvert og eitt, finna að við værum mikilvægur hlekkur í keðjunni.“

Spóluvél og bætt vinnuaðstaða

Í samantekt sem Páll gerði um sögu Vírnets árið 1999 segir hann svo frá um þróun mála eftir að vírdráttarvélin kom til: „Annað tæki viðkomandi vírdrætti var keypt um þessar mundir, en það var spóluvél til þess að vinda vírinn upp á sex spólur. Fram að þessu var vírinn undinn i 50 – 100 kg rúllu, en með spóluvélinni mátti vinda allt að einu tonni á hvert kefli, sem sparaði mikið vinnu við naglavélarnar.

Nú var líka orðin sú breyting í vinnubrögðum að lyftari var kominn á staðinn og önnur vinnuaðstaða var með tilkomu nýja hússins að breytast til mikilla bóta.“ Vinna við húsbygginguna á Borgarbrautinni hélt áfram samhliða annarri þróun fyrirtækisins, framkvæmdir voru í gangi fram eftir árinu 1965 og í september það ár var settur upp hlaupaköttur í vélasalnum. Húsnæðið átti síðar eftir að stækka mikið með viðbyggingum.

Gegnum tíðina var lítil starfsmannavelta hjá Vírneti enda fagþekking metin að verðleikum. Hér sést Agnar M. Ólafsson að störfum, en hann vann hjá fyrirtækinu í hálfa öld.

Allt að sjö tommu naglar

Þessar umbúðir prýddu verkstaði um land allt áratugum saman.

Í mars árið 1966 var flutningum úr Brákarey yfir á Borgarbraut lokið, en það var fyrst í ársbyrjun 1970 sem fyrri húseignin var seld og það var til Kaupfélags Borgfirðinga. Vírnet náði áfram góðri siglingu og framleiddi nær allan saum sem notaður var í landinu.

Árið 1982 var heildarframleiðsla á saumi og mótavír 1.231 tonn, þar af var mótavír 330 tonn. Nokkrum árum síðar störfuðu um 25 manns hjá fyrirtækinu og margar gerðir af saumi voru framleiddar, allt upp í sjö tommur að lengd. Styttri naglar en þrjár tommur voru rafgalvaniseraðir, en rafhúðunartæki hafði verið keypt af Galvanótækni, fyrirtæki sem Loftur Einarsson hafði stofnað, en þegar þar var komið sögu átti hann ekki lengur aðkomu að rekstri Vírnets.

Aðrar lengdir nagla voru heitgalvaniseraðar. Fyrir utan hefðbundna nagla var seldur þaksaumur og vírlykkjur og síðar kambsaumur. Þess má geta að saumurinn, sem notaður var til þess að negla dekkin á fyrstu brýrnar á Skeiðarársandi, var sérsmíði, 5,5 tommu saumur framleiddur í Vírneti. Eftir að stórhlaup hafði brotið þær brýr, pantaði Vegagerð ríkisins aftur samskonar saum, sem notaður var í nýju brýrnar.

Frekari vélakostur

Aukin festa var nú komin í rekstur Vírnets og fyrirtækið bjó að því að vera komið í rúmbetra húsnæði. En áfram var von á breytingum. Árið 1991 keypti Vírnet allt hlutafé í fyrirtækinu Bifreiða- og trésmiðju Borgarness hf og sagði Páll í viðtali það hefði verið gert til að ná fram hagkvæmni í rekstri.

Það markmið náðist hins vegar ekki og segir Páll í greinargerð sinni að líklegt sé að allir sem að þeirri tilraun stóðu hafi harmað að af henni varð. Á árinu 1973 var salan hjá Vírneti góð og mikið framkvæmda- og þenslutímabil fór í hönd. Í febrúar árið eftir var ákveðið að kaupa eina nýja naglavél og við tilkomu hennar varð talsverð afkastaaukning í pökkuninni.

Árið 1975 var enn ein naglavél keypt sem framleiddi saum upp í sex tommur. Ýmislegt fleira mætti telja upp er tengist rekstrinum, en hér er vísað í heimildaskrá og þá sérlega ofangreinda samantekt Páls Guðbjartssonar um sögu Vírnets.

Naglapökkunarvélin gegndi mikilvægu hlutverki.

Límtré Stofnað

Hér víkur sögunni að Límtré hf. sem var stofnað á Flúðum í Hrunamannahreppi árið 1982 og hóf framleiðslu árið 1983. Að baki stofnun fyrirtækisins lágu bæði tæknileg og byggðaleg markmið: að koma á fót innlendri framleiðslu límtrés, nýta jarðhita á Flúðum til timburþurrkunar og skapa ný störf í uppsveitum Árnessýslu. Hugmyndin var metnaðarfull, enda hafði íslenskur byggingariðnaður lengi byggst að miklu leyti á steinsteypu og innfluttu timbri, en límtré bauð upp á nýja möguleika í burðarvirkjum og stærri byggingum. Staðsetningin á Flúðum skipti miklu máli, bæði vegna jarðhitans og vegna þess að verksmiðjan gat orðið mikilvægur atvinnuvegur í nærsamfélaginu.

Fyrirtækið varð þannig ekki aðeins nýtt iðnfyrirtæki, heldur einnig liður í að efla sérhæfða framleiðslu og byggingartækni utan höfuðborgarsvæðisins. Frá fyrstu árum lagði Límtré grunn að þeirri þekkingu sem síðar nýttist við stærri mannvirki, einingahús og fjölbreytt verkefni í íslenskum byggingariðnaði.

Borgarnesstál

Klæðningarstálið varð mikilvægur hlekkur í framleiðslu Vírnets. Hér sést Karl Ágúst Ólafsson (1923-1999) við völsun á bárujárni.

En það var klæðningarstálið sem varð fljótlega ein helsta framleiðsluvara Vírnets. Það fékk heitið Borgarnesstál þegar nær dró aldamótum og var það liður í markaðsátaki sem markaðssérfræðingurinn Bjarni Grímsson var fenginn til að stýra.

Fyrsta völsunarvélin var keypt árið 1977, fyrsta bárujárnið ári síðar og kantstál fylgdi fljótlega þar á eftir. Fyrstu níu mánuðina eftir að völsunin hófst seldust 269 þúsund lengdarmetrar af bárujárni. Á þessum tímapunkti voru starfsmenn Vírnets orðnir um 35 talsins.

Skýring á þekktum vanda

Í upphafi níunda áratugarins gaf Vírnet út tvö leiðbeiningarrit um stálklæðningar og nagla og báru þau heitin Veðurkápan og Naglfestan. Leitað var m.a. til sérfræðinganna Björns Marteinssonar, Sigurðar Péturssonar og Jóns Bjarnasonar um efnistök og Guðrún Jónsdóttir sem þá sá um markaðsmál Vírnets ritstýrði verkinu. Það var á þessum árum sem ljóst varð að á Íslandi var ekki ráðlegt að nota ólíka málma í festingar og klæðningar sökum fjarlægðar þeirra í svokallaðri spennuröð málma, en sumir málmar geta ekki verið í snertingu hvor við annan vegna þess að annar þeirra tærist með tímanum. Þetta er nefnt galvanísk tæring. Yfirborð málmsins eyðist þá upp og verður hrjúft. Stundum sést eyðingin bara í smásjá en ef hún er töluverð getur hún sést með berum augum. Tæringin getur jafnvel orðið það mikil að gat komi á málminn.

Á þessum tíma hafði víða komið í ljós ryð í kringum ryðfrían saum í sinkhúðuðu járni, þrátt fyrir að skinnu naglans væri ætlað að skilja milli saums og stáls. Leitaði Vírnet m.a. til erlendra sérfræðinga vegna þessa máls, en ekki hafði borið á vandanum erlendis þar sem ólíkt veðurfar ríkti. Var það því erfiður róður að ná fram skilningi á vandanum.

Að lokum fékkst þó almennt viðurkennt að á Íslandi væru sérstakar aðstæður í veðurfari sem orsökuðu þetta. Saltmettun í vatni væri há og úrkoma algeng og oft viðvarandi. Við þær sérstöku aðstæður gæti rigningarvatn leitt á milli nagla og klæðningar með þessum afleiðingum. Var viðurkenning á þessari staðreynd  mikilvægur áfangi í íslenskri byggingarsögu og hefur skipt miklu máli í viðhaldskostnaði.

Þetta rit var mikilvægur hluti af byggingarsögu Íslands og sýndu rannsóknir Vírnets að sér íslenskar aðstæður kröfðust sérstakra ráðstafanna.

Yleiningar

Frá opnun steinullareiningar verksmiðjunnar á Flúðum 2016.

Í byrjun tíunda áratugarins hófst framleiðsla á yleiningum á Flúðum á vegum Yleininga hf og var það náttengt starfsemi Límtrés. Einingarnar voru notaðar í veggi og þök og féllu vel að límtrésburðarvirkjum fyrirtækisins. Með þeim var hægt að bjóða hraðari og heildstæðari lausnir fyrir ýmsar gerðir bygginga.

Árið 1995 tók Límtré hf. yfir rekstur Yleininga, enda höfðu einingarnar þá sýnt gildi sitt, hagkvæmni og fjölhæfi. Þessi þróun styrkti stöðu fyrirtækisins sem framleiðanda forsmíðaðra byggingarlausna. Árið 2016 var síðan byggð ný verksmiðja fyrir steinullareiningar á Flúðum, sem markaði næsta skref í þróun einingaframleiðslu fyrirtækisins.

Límtré kaupir Vírnet

Um aldamótin 2000 var enn komið að tímamótum. Kaupfélag Borgfirðinga, þá langstærsti eigandi Vírnets hafði ákveðið að selja Límtré hf sinn hlut. Límtré keypti einnig fleiri hluti og gerðist meirihlutaeigandi, einnig keypti það framleiðslutæki og rekstur Garðastáls í Garðabæ, sem framleiddi þak- og veggklæðningar.

Vírnet varð þá Vírnet Garðastál. Um þetta leyti fór Páll Guðbjartsson á eftirlaun og við tók Skagfirðingurinn Stefán Logi Haraldsson. Í ársbyrjun 2005 sameinuðu Límtré og Vírnet Garðastál innlendan rekstur sinn. Nýja sameinaða fyrirtækið ber heitið Límtré Vírnet ehf og er með starfsemi í Borgarnesi, á Flúðum í Hrunamannahreppi, í Reykholti í Biskupstungum og Reykjavík.

Frá sameiningu 2004 í Límtrésverksmiðjunni á Flúðum. F.v. Stefán Logi Haraldsson, Guðmundur Ósvaldsson, Hörður Harðarson
og Lárus Dagur Pálsson.

Eldri tímar kvaddir

Galvanhúðunardeiglan hafði verið mikilvægur hluti vinnslunnar í áratugi.

Á þessum tíma hafði vélakosturinn frá starfsemi Vírnets fyrstu árin sem fyrirtækið starfaði ekki sama hlutverk lengur. Í apríl 2017 var galvanhúðunardeiglan tæmd, síðan rifin og henni fargað. Í júní sama ár fór síðasta saumframleiðslan fram, það var sérvinnsla á riffluðum ál-demantþaksaumi. Öllum naglavélunum var pakkað í 40 feta gám sem sendur var til Þýskalands og þar voru þær seldar. Vírdráttarvélunum var fargað í brotajárn. Stórum kafla í sögu fyrirtækisins var þar með lokið.

Tækjakostur Límtrés Vírnets hefur verið í stöðugri þróun á síðasta áratug. Eldri vélum hefur smám saman verið skipt út fyrir nýjar og öflugri vélar sem auka bæði afköst og nákvæmni í framleiðslu. Þessi endurnýjun hefur styrkt verksmiðjur fyrirtækisins og gert þeim kleift að framleiða límtré, einingar og klæðningar með meiri hraða, jafnari gæðum og betri nýtingu. Með bættum vélbúnaði hefur fyrirtækið einnig getað mætt fjölbreyttari kröfum byggingarmarkaðarins og tekið að sér stærri og flóknari verkefni.

Nýr tækja kostur gerir starfsmönnum Límtré Vírnets kleift að framleiða meira, hraðar og af meiri nákvæmni.

Áratuga saga

Í heitinu Límtré Vírnet felst virðing fyrir farsælum uppbyggingarferli beggja fyrirtækja frá upphafi. Límtré Vírnet starfar í dag í Borgarnesi, á Flúðum og í Reykjavík og er stærsta fyrirtækið á Íslandi á sviði völsunar á klæðningarefnum og eini framleiðandi límtrés og steinullareininga. Fyrirtækið flytur jafnframt inn breitt úrval af byggingavörum. Það er öflugur þátttakandi í atvinnulífi á Íslandi, ekki síst á landsbyggðinni. Sá árangur kemur ekki af sjálfu sér, hann ber að þakka starfsfólkinu, sem hefur unnið starf sitt af alúð og fagþekkingu.

Límtré Vírnet hefur starfstöðvar á 3 stöðum.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá sögu okkar. Ef þú hefur myndir eða sögur af Límtré, Vírnet eða Límtré Vírnet viljum við endilega heyra frá þér.