Hvernig litir og form upphefja bygginguna

Klæðningin okkar sér ekki bara um að verja byggingar fyrir veðri og vindum heldur hefur mótandi áhrif á hvernig þær líta út. Hver bygging sem er reist mótar umhverfi sitt til lengri tíma svo það er gott að skoða hvaða möguleikar eru í boði bæði í litum og formum.
Hér viljum við sýna frá nokkrum byggingum sem nota Klæðninguna sem verkfæri til að skapa einkennandi hughrif sem verða sérkenni bygginganna í áraraðir.
Fágaðir litir sem upphefja formin
Brons- og koparlitaðir tónar gefa þessum byggingum hlýlegt og fágað yfirbragð, á meðan dökkir fletir draga fram lögun þeirra. Litirnir fá ólík hlutverk: hlýi liturinn fyllir stærstan hluta veggjanna en sá dökki afmarkar hæðir, horn og einstaka byggingarhluta.
Með því að nota mismunandi form á sitthvorum litnum skapast skemmtilegt útlit sem dregur augað að byggingunni og leyfir bæði litum og formum að njóta sín. Slétt dökk úthorn líta næstum þó óraunverulega út og mynda ramma utan um koparpanilinn.
Þessir litir virka gríðarlega vel saman og skapa tækifæri til að nota mismunand form klæðningarinnar á nýja vegu.
Ekki bara svart og hvítt
Andstæður vinna vel saman ef þær eru notaðar rétt. Dökkir og ljósir litir einkenna hverja byggingu eða form fyrir sig ef þeir standa hlið við hlið. Litir sem einir og sér verða ógreinilegir eða jafnvel leiðinlegir, lifna við þegar þeim er stillt á móti hvorum öðrum.
í þessum myndum má sjá hvernig hvítir og kremaðir litir sem er er stillt á móti, svörtum, gráum og jafnvel brúnum litum tekst að skapa einstakt útlit sem tekið er eftir.
Mildir tónar og einföld form
Brúnir, gráir og dökkir tónar geta gefið húsum rólegt og látlaust yfirbragð. Þegar einn aðallitur fær að ráða stærstum hluta byggingarinnar verður lögun hennar meira áberandi. Þaklínur, gluggar og svalir fá að njóta sín.
Á þessum myndum sjáum við bæði hefðbundin mænisþök og beinar eða stallaðar þakbrúnir. Litavalið heldur útlitinu einföldu, á meðan ólík húsform gefa hverri byggingu sín sérkenni.
Bára og önnur klæðning með lóðréttum línum gefur stórum veggflötum áferð. Birtan myndar skugga í klæðningunni og breytir því hvernig hún kemur fyrir sjónir yfir daginn. Þannig getur hóflegt litaval skapað áhugavert útlit þar sem smáatriðin fá meira vægi.
Mosi og birta
Grænir og grágrænir tónar gefa þessum byggingum ferskt og náttúrulegt yfirbragð. Ljósar gluggaumgjarðir skera sig úr grænum veggjunum og hlýir viðartónar við svalir og verandir bæta hlýju við heildina.
Hér sést sérstaklega vel hvað form klæðningarinnar og frágangur í kringum glugga geta gert fyrir húsið. Fíngerð bára myndar reglulegt mynstur en sléttar, ljósar umgjarðir standa út frá veggnum og kasta skugga á hann. Þar sem aðeins sumir gluggarnir fá þessa umgjörð verður framhliðin líflegri.
Græni liturinn kemur líka vel út á stærri, sléttari flötum með skýrum lóðréttum línum. Þá fær liturinn sjálfur meira vægi og gluggar og svalir sjá um að brjóta upp vegginn. Sama litafjölskylda getur þannig gefið húsum bæði fjörlegt og yfirvegað yfirbragð.
Hlýjir jarðlitir
Sandlitir, grábrúnir og rauðbrúnir tónar fara vel saman og skapa hlýlegt yfirbragð. Ljósir og gráir fletir gefa þeim síðan svigrúm til að njóta sín. Þessar samsetningar geta hentað jafnt á lítið einbýlishús og stærri byggingar.
Þegar fleiri litir eru notaðir á sama hús skiptir máli hvernig þeir fylgja lögun þess. Litaskipti við horn eða á milli útstæðra og inndreginna hluta draga fram hönnunina. Löng framhlið getur þannig virst samsett úr nokkrum minni húsum sem eiga þó greinilega saman.
Ólík form klæðningarinnar styrkja þessa skiptingu. Sléttir fletir, bára og lóðréttur panill gefa hverjum hluta sitt yfirbragð, á meðan samræmi í litum, gluggum og handriðum tengir heildina saman. Það gefur færi á að nota fleiri liti og form án þess að útlitið verði sundurlaust.


























