Hvað þýðir “byggingarefni framtíðarinnar”?

Hvað köllum við byggingarefni framtíðarinnar?
Það er auðvelt að tala um framtíðina eins og hún sé langt í burtu. En byggingar reistar í dag eiga að standa í áratugi í íslensku veðri og aðstæðum. Kröfur um útlistun á umhverfis áhrif hafa verið leidd í lög, staðlar eins og Svanurinn og BREEAM verða algengari og almenningur hefur í heild sinni meiri væntingar til þess að byggingar séu byggðar með framtíðina í huga.
Þegar Límtré Vírnet segir: „Við framleiðum byggingarefni framtíðarinnar,“ meinum við byggingarefni sem standast þessar kröfur, sem við framleiðum með eigin tækjabúnaði, tækni og hugviti. Við erum að tala um efni sem eru sterk, endingargóð, rekjanleg og skjalfest. Efni sem nýtast í raunverulegum verkefnum í dag, en mæta kröfum morgundagsins. Það skiptir máli, því byggingar- og mannvirkjageirinn hefur gríðarleg áhrif á loftslag og umhverfi okkar allra. UNEP og GlobalABC meta að geirinn noti 32% af orku heimsins og valdi 34% af hnattrænni CO2-losun.
En af hverju eru byggingarefnin okkar byggingarefni framtíðarinnar?
Límtré: Náttúrulegt burðarvirki
Límtré er eitt skýrasta dæmið um byggingarefni framtíðarinnar. Það sameinar styrk, sveigjanleika í hönnun og hlýja ásýnd timburs sem er hægt að móta í burðarbita, súlur, boga og aðrar sérlausnir.
Límtré er úr trjám sem binda kolefni á vaxtartíma sínum og þegar timbur er notað í langlífar byggingar helst hluti þess kolefnis bundinn í efninu. Á sama tíma getur timbur í mörgum tilvikum komið í stað orkufrekari efna í burðarvirkjum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að burðarvirki úr límtré losar allt að 50-80% minna kolefni en burðarvirki úr stáli.

Hjá Límtré Vírnet fer límtrésframleiðsla fram á Flúðum. Timbrið kemur úr nytjaskógum í Skandinavíu, er styrkleikaflokkað og framleiðslan er CE-vottuð samkvæmt EN 14080. Fyrirtækið hefur einnig birt EPD-umhverfisyfirlýsingu fyrir límtré sem er nauðsynlegt fyrir lífsferilsgreiningar.
Steinullareiningar: einangrun, öryggi og hraði í einni lausn
Framtíðarbyggingar þurfa ekki aðeins gott burðarvirki heldur veggi og þök, veðurkápu sem einangrar og verndar það sem er fyrir innan. Þar koma steinullareiningar Límtré Vírnets sterkar inn.
Steinullareiningar eru samlokueiningar með steinullarkjarna og stálklæðningu. Stálklæðningin er GreenCoat sem er bæði níðsterk og eins umhverfisvæn og stálklæðning getur orðið. Slík eining sinnir mörgum hlutverkum í einu: hún einangrar, þéttir, ver gegn veðri, styður við hljóðvist og getur einfaldað uppbyggingu veggja og þaka.
Í einingarnar notum við fyrst og fremst íslenska steinull sem er framleidd úr basalti og öðrum steinefnum úr íslenskri orku. Umhverfissporið á steinullarineingum Límtré Vírnetrs er því talsvert minna en á öðrum yleiningum. Því er um að ræða byggingarefni sem endist lengi, er úr hráefni sem skilur lítið kolefnispor eftir sig og er framleitt að miklu leyti úr íslensku hráefni.

GreenCoat: klæðning sem á að endast
Í sjálfbærum byggingum skiptir ending jafn miklu máli og upphaflegt kolefnisspor. Ef klæðning endist lengur, þarf sjaldnar að skipta henni út, nota minna hráefni og eyða minna í viðhald.
GreenCoat uppfyllir allar þessar kröfur enda er það stálklæðning með húð úr repjuolíu í stað jarðaefna olía. Húðin er samt níðsterk og þróuð í Svíþjóð í krefjandi aðstæðum, meðal annars nálægt saltvatni, snjó, ís, útfjólublárri geislun, raka, vindi og stormi.

Álklæðningar: Skapaðu nútímalegt útlit sem endist
Á íslandi er alltaf verið að reyna að koma í veg fyrir ryð. Skiljanlega, við erum umkringd hafinu. Ál er létt, mótanlegt og tæringarþolið efni sem endist því mun lengur en önnur klæðning.
Klæðningin okkar er hefur endingargóða pvdf húðun sem mun móta útlit bygginga til lengri tíma. En álið endist ekki bara betur, það gerir okkur kleift að búa til nýjar tegundir af klæðningum sem hafa ekki sést áður. Báran mun ávallt hafa sinn sess en í dag getum við klætt byggingar í fallegum panel, dropabroti eða fjallapanel.

Hvað þýðir þetta allt saman
Okkar markmið er ekki að framleiða bara byggingarefni sem líta vel út á blaði. Það er ekki nóg fyrir okkur að uppfylla grunnkröfur um EPD eða lífsferilsgreiningar. Við viljum framleiða byggingarefni sem nýtist í dag til að byggja hluti sem endast langt í framtíðina, án þess að eyðileggja hana fyrir komandi kynslóðum. Þessi gildi skipta okkur máli og leiða alla okkur þróun og framleiðslu. Við framleiðum byggingarefni úr annaðhvort íslensku eða nálægu hráefni úr hreinni íslenskri orku sem á að endast. Þess vegna segjum við: Við framleiðum byggingarefni framtíðarinnar.